header image headerimage    
 


ABOUT:
Hitchhikers guide to South America. And the saga begins.....


Visit my Guestbook ARCHIVES:




Saturday, March 29, 2003

 
Loksins, loksins gáfum vid okkur tíma fyrir ykkur kaeru lesendur! Settumst nidur a huggulegt kaffihús hér í Buenos Aires og fórum ad púsla saman texta, ekki beinlínis hlaupid ad thví thar sem ár og dagar hafa lidid sídan vid skrifudum seinast og bidjumst thvi hér med velvirdingar á thví.
Líf ferdalangsins er ekki beinlínis audvelt. Alltaf á fartinni, alltaf ad kvedja, baedi fólk og stadi sem ferdalangurinn hefur myndad tilfinningaleg tengsl vid. Eignast vini út um allar trissur, vini sem hann jafnvel kann aldrei ad hitta aftur sokum langra vegalengda. Óteljandi dýrmaetar minningar sem ferdalangurinn leggur sig allan fram vid ad gleyma ekki. Hann amast yfir lélegum framkollunum, batteríislausri eda filmulausri myndavél eda hreinlega eigin gleymsku. Margar dýrmaetar minningar eru adeins til í hofdi ferdalangsins, kannski í rytjulegri og slitrótti dagbók.
En thrátt fyrir taugastrekkjandi og átakamikid tilfinningalíf ferdalangsins, er ekki aftur snúid. Ferdalangurinn er sýktur af ólaeknandi veirusjúkdómi. FEV; ferdaveikinni. Fyrstu einkenni lýsa sér med brennandi aevintýrathrá og fródleiksfýsn í framandi slódir. Hún stigmagnast svo og lokastig sjúkdómsins er daudi ferdalangsins er hann segir skilid vid hid aesispennandi líferni eftir ótal ferdalog og aevintýri. Sest ad í eigin heimalandi og hefur óspennandi rútínulíferni. Fastur í námslánum, húsnaedislánum, bílalánum, yfirdráttarheimildum, kreditkortaskuldum, hjónabandi og bornum.

Nú er hafinn nýr kafli í ferd okkar um S-Ameríku. Kvoddum Tucan-hópinn okkar í Rio og tókum rútu til Buenos Aires í 45 klukkutíma. Silja fór eftir tvaer vikur heim til Íslands, aetti ad vera komin um thetta leytid... Ég og Steinunn aetlum ad vera hér í mánud í vidbót, taka lífinu rólega, kynnast menningunni hér og njóta thess sem thessi evrópska borg, nánast sydst í S-Ameríku hefur ad bjóda.
Meira sídar...

Ella



This page is Powered By Blogger. Isn't yours?