Friday, February 21, 2003
Thad var loksins ad vid komumst à netkaffi hèr ì Asuncion ì Paraguay! Paraguayanar greinilega ekki mikid fyrir ad hanga à netinu; tòk okkur 2 tìma ad finna internet cafè. Vantadi alls ekki auglysingaspjoldin ùtum allt, allir auglysa internet, en thegar kom ad thvì ad komast ì tolvurnar virtust engir hafa thaer, eda thà ad thad var ein 15 àra gomul bilud tolva ùtì horni... En hvad um thad, hèr hefur margt à daga okkar drifid seinustu daga. Ef vid holdum àfram frà thvì thar sem silja haetti seinast, thà komumst vid heil ad holdnu ad lokum til Potosì ì Bòlivìu, sem er ein af haestu borgum veraldar (um 4070m yfir sjò). Potosì er nàmuborg, thar bùa um 110thùsund manns nùna, en hùn var eitt sinn staerri en Parìs og New York, thegar nàmuvinnslan var uppà sitt besta. Thar eru thò ennthà unnir ymsir màlmar ùr nàmunum og adstaedur nàmuverkamannanna hafa lìtid breyst ì gegnum tìdina, thvì midur. Thar vinna menn ì dimmu og raka alla daga vikunnar, 12 - 14 tìma à dag, nema à sunnudogum og à jòladag thà fà their frì eftir hàdegi. Vid fòrum ì skodunarferd innì nàmurnar sem var ekki fyrir fòlk med innilokunarkenndartendensa.. Thar var mjog dimmt svo vid fengum gamaldags eld-lampa og mjog throngt. Vid thurftum ad klifra upp og nidur og innì allskyns op sem sum voru ekki mikid staerri en 1/2 fermetri ad ummàli. Stòrhaettulegt à koflum en thò algjorlega thess virdi. Held thad muni lìda einhver tìmi thar til madur fer ad kvarta yfir leidinlegri vinnu à ìslandi! Og fyrir dagsvinnu fà mennirnir um 25 Bolivianos (eda um 250kr) til ad framfleyta sèr og sìnum. Ekki mikid um stòrhàtìdir thar!
Ì Bòlivìu skodudum vid lìka risa-saltslèttur ì Salar de Uyuni. Thad er land, um 1200km2 ad staerd, hulid salti. Leit alveg eins ùt og madur vaeri ad ganga og keyra à jokli nema bara ad thad var 30ºC hiti og "snjòrinn", sem nàdi eins langt og augad eygdi, var salt! Innà milli voru nokkrar eyjur og vid fòrum uppà eina slìka, Fiskieyjuna, af thvì ad ì fjarlaegd lìtur hùn ùt eins og fiskur. Òtrùlega skrytid, allt ùt ì risakaktusum og nú var alveg eins og madur vaeri staddur à lìtilli eydieyju lengst ùtì hafi, nema haegt ad ganga à "sjònum" ì kringum eyjuna.
Eftir Uyuni eyddum vid 2 heilum dogum ì rùtuferdir à leidinni til Salta ì Argentìnu. Audvitad var vesen à landamaerunum eins og venjulega, their virdast aldrei finna Ìsland à listanum yfir lond ì heiminum nema madur bendi theim nàkvaemlega à thad. Thad sama var uppà teningnum med thennan landamaeravord, hann gaf okkur adeins moguleika ad vera frà Finlandia eda Irlanda.
Thad voru mikil vidbrigdi ad koma til Argentìnu frà Perù og Bòlivìu. Thar leid manni mun meira eins og ì evròpskri borg heldur en nokkurntìmann ì hinum àdurnefndu londum. Thegar madur hugsar aftur minna adstaedurnar thar okkur svolìtid à hvernig madur hefdi ìmyndad sèr sveitafòlkid à Ìslandi fyrr à tìmum, fòlk ad hokrast ì moldarkofum og allt samankudlad af erfidisvinnu. Ì Argentìnu gaetum vid okkur allar hugsad okkur ad búa og stefnum vonandi beina leid til Buenos Aires eftir Karnivalid ì Rio - thar er òdyrt ad bùa, svo ekki sè talad um alla guddòmlegu karlmennina thar! ;) Ì Salta fórum vid í river rafting sem var ótrúlega skemmtileg reynsla. Áin var 2 tímum fyrir utan borgina og starfsfólkid voru adallega ungir strákar sem jodrudu vid ad vera ofvirkir, thannig ad their lífgudu ágaetlega uppá ferdina. Vegna árstíma var mjog mikid og aurugt vatn í ánum, og vid erum enn allar mardar og skrámadar eftir allar velturnar og sundid í ánni. Vid vorum líka àgaetlega duglegar vid ad skoda naeturlìfid í Salta, drògum Marìu mùslimaavinkonu okkar med okkur. Hùn er òtrùlega fyndin, okkur er farid ad thykja mjog vaent um hana greyid. Vid hofum hálfpartinn tekid hana uppá okkar arma vegna eineltis sem hún hefur ordid fyrir í hópnum. Mjog hress stelpa med slaedu sem mà ekki drekka eda stunda kynlìf en talar ekki um annad! Thid getid rètt ìmyndad ykkur hvernig hùn tapadi sèr ì ollum argentìnsku stràkunum! Tònlistin à stòru diskòtekunum var ekki uppà marga fiska; salsa-house-trans-pìku-europop, adallega stemningin thar inni sem heilladi okkur. Sem daemi um gaedi tònlistarinnar, thà hèldum vid ad vid myndum missa okkur af gledi thegar DJ-inn setti Kylie à fòninn, eins mikid og vid erum farnar ad hata thà manneskju eftir ad hafa bùid med 8 àstrolum ì rùman mànud! Jà... vid nàdum reyndar ad missa okkur à fleiri stodum en dansgòlfinu - villtumst inn ì nokkrar bùdir og komum heim nokkrum flìkum og geisladiskum rìkari! Allt hraeòdyrt, t.d. keypti èg mèr tvennar buxur, tosku, bol og (....mamma ekki fà flog!) 44 geisladiska (silja keypti lìka naestum jafn marga!!!) fyrir um 20thùsund krònur ìslenskar. Fàrànlegt. Thad er reyndar seinni tìma vandamàl hvernig vid komum thessu ollu heim. Hofum heyrt ad pòstthjònustan sè adeins àreidanlegri ì Brasilìu en hinum londunum sem vid hofum verid ì. Ekki vìst ad thid fàid pòstkortin ykkar fòlk, thvì midur - gerdum okkar besta thò!
Paraguay er vid fyrstu syn mjog lìkt Argentìnu, thò vid hofum ì raun ekki sèd mikid af landi og thjòd. Byrjudum à fràbaeru tjaldsvaedi nàlaegt Trinidad vid landamaeri Argentìnu, med lùxus sundlaug og hreinum klòsettum - eitthvad sem vid hofdum ekki sèd lengi og var langthràd eftir 8 daga tjaldùtilegu! Vid skodudum Trinidad à leidinni, en thar eru rùstir af bùsetu Jesùìta à svaedinu. Mjog merkilegt og gaman ad sjà. Eftir thad keyrdum vid ì 8 tìma til Asuncion, hofudborgarinnar thar sem vid erum staddar. Hèr bùa um 3 milljònir manna og borgin er frekar venjuleg Sudur-Amerìsk hofudborg undir sterkum evròpskum àhrifum. Thad sem er einna fyndnast er smekkleysi (vaentanlega) embaettismanna, thvì t.d. oll skrifstofhùsnaedi rìkisins sem vid hofum sèd eru ferskjubleik à litin, ekki mikid meiri metnadur thar en ì hinu lìka òsmekklega sendiràdi Paraguay ì La Paz sem vid thurftum ad hùka ì klukkutìmum saman. Talandi um La Paz, veit ekki hvort thad eru bùnar ad vera frèttir af thvì heima en hofum verid ì algjoru sjokki vegna àstndsins sem blossadi upp thar innan vid viku sìdan vid hofdum verid thar. Live myndir ì sjònvarpinu af ollum theim stodum sem vid vorum à innan um alla mannmergdina, algjorlega tòmir fyrir utan einstaka hermenn sem hlaupa um vopnadir rifflum. Vorum líka ad frétta ad Burger King stadurinn thar sem vid bordudum á fyrir um viku sídan hafi verid sprengdur í loft upp. Mjog òhugnalegt.
Onnur hlid á Perúbúum, Bólivíonum og Paraguayonum sem okkur finnst hálf hallaerisleg er tónlistarsmekkurinn. Reyndar var mjog mikid af flottri tónlist inná milli, en verd ad vidurkenna ad vid vorum komnar med frekar mikid leid á panflautum eftir mánud í Perú og Bólivíu. Haha, Leoncie vaeri orugglega ad fíla sig mjog vel thar, eda nei, aetli thad sé ekki frekar haegt ad segja ad hún myndi falla inní fjoldann. Thar sáum vid heilu hljómsveitirnar, sem innihéldu kannski 10-15 manns, allir med hljómbord og í fotum frá '85, frábaert! Eda thegar vid stoppudum á risaveitingastadnum hér í Paraguay thar sem allt var útí vidbjódslegum Valentínusardagsskreytingum í ollum litum og um 1000 manns ad borda, eiginlega bara eins og stjornutorgid í kringlunni nema bara staerra og ósmekklegra. Thad sem var thó best var gamli, feiti karlinn í fráhnepptu Hawaii-skyrtunni sem sat med hljómbordid sitt útí horni ad syngja frumsamin log í bland vid Sudur-Ameríska slagara! Erum búnar ad lenda í nokkrum slíkum snillingum í ferdinni...
Akkùrat nùna erum vid à leidinni ad saekja allan thvottinn okkar sem nàdi ad mygla ì seinustu tjaldùtilegu-torn til ad undirbùa okkur undir thà naestu; 9 dagar ì tjaldi. Thad sem vid anti-ùtilegufòlkid kvìdum thò mest fyrir, frekar en ad hùka ì tjaldi, er ad eyda 9 heilum sòlarhringum med hòpnum okkar. Òtrùlega leidinlegt hvad hefur komid upp lèlegur mòrall ì hòpnum, undir dyggri leidsogn fararstjòrans, Sue. Hef aldrei kynnst jafn barnalegri fullordinni manneskju. Hùn gengur um og baktalar alla og leggur fòlk ì einelti haegri vinstri. Manni finnst oft eins og madur sè kominn ì 12 àra bekk aftur. Og thad er thessi manneskja sem vid vorum ad borga fyrir ad vera almennileg og halda hòpnum okkar saman! Vid erum ad undirbùa formlegt kvortunarbrèf til ferdaskrifstofunnar, thar sem vid aetlum ad afhjùpa allt, auk thess sem okkur langar til ad nidurlaegja hana fyrir framan allan hòpinn eins og hùn er ad gera vid einstaka fòlk hèr. Vid aetlum thò ad sitja à okkur, en hofum fengid okkur fullsaddar à ad hlusta à hana tala illa um fòlk sem à thad engann veginn skilid og fà fòlk ì lid med sèr til ad leggja einstaka manneskjur ì einelti, lìkt og donsku mùslimastelpuna sem hefur verid skotmark hennar frà fyrsta degi. Lìklega frekar vegna trùar en persònuleika. Skrytid ad svona skuli vidgangast og lìka ad òtrùlegasta fòlk tekur thàtt ì thessu, òhàd aldri! En aetla ekki ad vera ad eyda tìma og plàssi hèr til ad kvarta yfir henni, hùn hafdi vìst verid logd ì einelti sjàlf lengi vel og er lìklega ad reyna ad nà sèr nidri à thvì fòlki nùna. Sorglegt.
En, thurfum ad fara ad koma okkur àdur en thvottahùsid lokar, hofum frètt ad thad sè McDonalds hèr ì bae og erum ad hugsa um ad gerast jafnvel svo glaepsamlegar ad borda thar ì kvold! :/ Stundum faer madur nòg af lòkal mat, s.s. naggrìsasteikum, hrìsgrjònum og maìsbraudi!
Guaraní-kvedjur ùr sudri...
STEINUNN
Monday, February 17, 2003
Hér kemur thad sem ég var búin ad skrifa í Asuncion í Paraguay og hélt ad hefdi allt thurrkast út thegar tolvan fraus. Njótid vel! ;)
Erum annars staddar í gódu yfirlaeti vid Igacu fossa í Brasilíu, thar sem vid vorum ad enda vid ad borda yfir okkur af líbonskum mat og konfekti! Skrifum betur um thad seinna, saalam alaikum! STEINA.

